Vaðbrekka

Vaðbrekkingar

22.07.2008 11:29:49 / vadbrekka

Þáttur á RUV um vaðbrekkuhjónin

Ragnhildur Aðalsteinsdóttir er hér með þátt um vaðbrekkuhjóninn. Flutt á rás 1, 15 júlí 2008.
Veit ekki hvað þessi linkur gengur lengi, en hugsanlega má fá þáttin á stafrænu formi frá Ragnhildi.
Hér er þátturinn.


» 22 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 16:34:12 / vadbrekka

Hittingur 10. mars

 

Ágætu ættingjar!

Þann tíunda mars, (10.3.) verður samsæti í Beykihlíð 21 (105 Reykjavík). Húsið er opið gestum frá klukkan 19.00 og fram eftir kvöldi. Velkomnir eru allir afkomendur Ingibjargar frá Vaðbrekku og vinir þeirra og vandamenn. Eins og venjulega verður skotið saman í veitingar enda margir frábærir kokkar í fjölskyldunni. Menn verða sjálfir að ákveða hvað þeir taka með en öllum fyrirspurnum um það og annað svara ég að bragði. Þeir sem ekki treysta sér til að koma með veitingar eru auðvitað velkomnir líka en persónutöfra og gott skap má ekki skilja eftir heima. Auðveldast er að ná sambandi gegnum tölvupóst (kjj@khi.is en gangi það ekki er farsíminn 8991811. Svari ég ekki er ég að kenna eða á fundi og hringi þegar þeim ósköpum léttir.

Húsið stendur efst í Suðurhlíðum, nokkurn veginn andspænis Veðurstofunni og sést af Bústaðavegi. Bílastæðavandi gæti skapast en þegar komið er yfir  Kapellutorg er leikskóli til hægri, við endann á götunni. Þar er stórt bílastæði um það bil 3 mínútna gang frá Beykihlíð 21. Annars má leggja hvar sem er nema í stæðið sem tilheyrir húsinu við hliðina á okkur.

Ánægjulegt væri ef einhverra hæfileika yrði nú vart í ættinni að þessu sinni og menn sæju sér fært að koma með eitthvað skemmtilegt til að lesa upp, syngja eða leika. Hins vegar er rétt að taka það skýrt fram að allir eru velkomnir, hvort sem þeir eru vel upplagðir eða ekki.  Látið boð þetta berast til ættingjanna ef ykkur grunar að þeir séu seinlátir við tölvupóstinn.

Með vinsemd og virðingu!

Kristján Jóhann Jónsson og Dagný Kristjánsdóttir


» 30 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 08:40:00 / vadbrekka

Jakob S. Jónsson skrifar vegna áttræðisafmælis Jóns Hnefils!

Kæru ættmenni!

 

Jakob S. Jónsson skrifar vegna áttræðisafmælis Jóns Hnefils!

 

Þar kom að því, að hann karl faðir minn er sem óðast að ná áttræðisaldri! Það gerist samkvæmt bókunum þann 29 mars næstkomandi. Mér þykir full ástæða til að halda uppá slíkt enda tilefni till mannfagnaðar og dagamunar aldrei of fá.

 

Þess vegna langar mig til að bjóða öllum ættmennum, sem á annað borð geta vettlingi valdið, til ofurlítils eftirmiðdagssamsætis,

 laugardaginn 31 mars í Skólabæ við Suðurgötu í Reykjavík. 

Nánari tímasetning og heimilsfang kemur í netpósti síðar. En ef þið vilduð taka eftirmiðdaginn frá, yrði enginn þakklátari en ég!

 

Svo bið ég ykkur, sem vilja og ætla að koma, að tilkynna mér það með orðsendingu á netfang mitt jakob.jonsson@telia.com og þá get ég á móti lofað, að enginn hverfur kaffiþyrstur eða kökusvangur af vettvangi.

 

Mikið væri svo gaman, ef allir gestir tækju með sér eitthvert skemmtiatriði í mannfagnaðinn … !

 

Ykkar frændi,

Jakob

Símar:   862 86 24, eða 0046707 59 80 30.


» 22 hafa sagt sína skoðun

23.09.2006 13:21:00 / fjola

Heilbrigðiskerfið og pólitíkin

Ég hef síðustu vikur lagt mig eftir því að kanna íslenska heilbrigðiskerfið. Frændi minn Aðalbjörn Sigurðsson útnefndi aðalpervert Ausurlands sem þættist hafa vit á öllu. Nú bætist viðað við eigum gott heilbrigðisstarfsfólk sem er frábært þótt það vefjist eitthvað fyrir því að lækna mig. Ég er svo sem ekki yfir mig hrifinn að þurfa að rúnta um hálft austurland til Akureyrar til að fara í rannsókn. Þið sem ætlið í pólitík fyrir vorið, ég skora á ykkur að berjast fyrir rannsóknar sjúkrahúsi á Egilsstöðum. Það á ekki að  ógna Neskaupsstað. Það er hægt að samræma sjónarmið með því að gera gat til Neskaupstaðar. Þar er hugmyndin jarðgöng frá Héraði til Eskifjarðar það sem skiptir mestu máli. Ég eggja ykkur lögeggjan. Nú hefur leiðtogi okkar sjálfstæðismanna Halldór Blöndal lýst því að hann hyggist ekki taka sæti áfram, hafi hann heila þökk fyrir drengilegan málflutning fyrir sjálfstæðisstefnuna og hinar dreyfðu byggðir. Ég  sé framhaldið klárt. Arnbjörg Sveinsdóttir, Kristján Þór, Fjóla Hrafnkelsdóttir, Sigurjón Benediktsson, Þorvaldur læknir. Austfirðingar eiga að sýna manndóm og standa saman um Arnbjörgu og Fjólu, finnið Fjarðamann . Með baráttukveðju

Hrafnkell


» 24 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 11:12:11 / fjola

Ný ættarmótsnefnd

Hæ hæ

Ég vona að allir séu sáttir eftir ættarmótið okkar góða. Ég set hér inn listann um næstu nefnd. Þórveig Hákonar á að kalla nefndina saman en þau ákveða svo sín á milli hver verður í forsvari.

  • Guðrún – Ævar Þorgeir Aðalsteinsson
  • Jóhanna – Helgi Aðalsteinsson
  • Guðlaug – Inga Bára Guðbjartsdóttir
  • Jón Hnefill – Örlygur Hnefill Örlygsson
  • Stefán – Bjarni Gunnarsson
  • Sigrún – Eðvarð Eðvarðsson
  • Aðalsteinn – Fanney Vigfúsdóttir
  • Hákon – Þórveig Hákonardóttir
  • Ragnar – Davíð Ingi Ragnarsson
  • Birgir – Ásgeir Birgisson

Hafið það gott og vonandi sjáumst við fljótt aftur.

Kveðja Fjóla Hrafnkelsdóttir


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 00:37:35 / fjola

Ættarmót - dagskrá og praktískar upplýsingar

Komið þið sæl kæru ættingjar

Ég var að koma ofan af Vaðbrekku þar sem allt hefur verið tekið rækilega í gegn og allt að verða tilbúið fyrir ættarmót. Aðalsteinn og Sigríður á Vaðbrekku eiga miklar þakkir skildar sem og allt þeirra fólk þar sem þau hafa lagt gríðarlega vinnu til þess að hægt sé að halda ættarmót á Vaðbrekku.

Nokkur atriði sem ég vil minnast á þar sem ég hef fengið spurningar frá ýmsum:

·        Það kostar 1000 kr inn á mann fyrir 12 ára og eldri.

·        Bókin "50 sumur í Hrafnkelsdal", saga og ættartal Vaðbrekkufjölskyldunar verður til sölu og kostar hún 5000 kr.

·        Það verður ekki posi á staðnum en þeir sem gleyma sér geta fengið að renna kortinu sínu í gegn á Skjöldólfsstöðum ef fólk á leið þar um.

·        Það verða 8 borð og 40 stólar í hlöðunni. Þeir sem koma til með að vera í útilegu eru beðnir um að taka með sér útilegu borð og stóla ef fólk á það til.

·        Á laugardagskvöldið grillum við og borðum við saman. Fólk kemur með allan mat og drykki fyrir sig sjálft.

·        Það verða 2 stór tunnugrill á staðnum og allavega eitt gasgrill. Ef einhver sem býr í sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði og á gasgrill sem vill lána þá er alltaf betra að hafa fleiri grill en færri.

·        Þeir sem mögulega geta ættu að taka með sér grill tangir til að nota við grillið.

·        Það eru ennþá laus gistipláss inn í Vaðbrekkubænum ef einhver óskar eftir gistingu.

·        Það er mjög góð veðurspá þannig að vonandi verðum við heppin. Við skulum samt sem áður vera viðbúin öllu og taka með okkur hlýjan fatnað s.s útigalla/kraft galla.

Hér fyrir neðan kemur svo dagskráin. Henni verður dreift til allra um leið og fólk kemur á staðinn.

Dagskrá:

Föstudagur:

Kl. 17.00 – 22.00 Móttaka ættarmótsgesta, allir koma og greiða og fá merki í barminn. Bókin “50 sumur í Hrafnkelsdal” verður til sölu. Stórglæsileg bók sem engin ætti að láta framhjá sér fara. Kjötsúpa í boði inn í bæ fyrir alla gesti.

 

 



Laugardagur:

Kl. 10.00 Fear Factor – stjórnandi Steingrímur Randver

Kl. 13.00 – 17.00 Frír tími

            Tillögur að afþreyingu annarri en að njóta samveru hvors annars.

Skoða dýragarðin og galleríið í Klausturseli

Sund á Skjöldólfsstöðum – laugin opin fyrir Vaðbrekkumenn á milli 12.00 – 17.00 – FRÍTT Í SUND

Fótboltamót

Kl. 17.00 – 18.00 Skemmtiatriði undirbúin og æfð. Hver hópur afkomenda skipuleggur og æfir skemmtiatriði. Það sem þið eruð beðin um að hafa í huga er:

Söngur, dans, sögur, leikþættir, leikir, hljóðfæraleikur, glens og grín

Kl. 18.00 – 20.00 Kveikt upp í kolunum.

Hagyrðingar bregða á leik á meðan við borðum saman.

20.00 – ? Skemmtidagskrá

Ræður

Ræðukeppni yngri Vaðbrekkumanna – Tumi stjórnar

Skemmtiatrið frá hverjum afkomenda hóp

Leikir

Söngur

Hagyrðingar - Bjartasta vonin valin

Hinn frábæru Vaðbrekkuverðlaun veitt – sætasti vaðbrekkumaðurinn, skemmtilegasta vaðbrekkumaðurinn o.s.frv.

 

 



Sunnudagur:

Kl. 10.00 – 12.00 Morgunkaffi. Ættingjar koma saman í hlöðunni og fá sér morgunverð. Kaffi á könnunni. Leikir fyrir krakkana. 

Kl. 13.00 – Allir fara inn í kirkjugarð á Eiríksstöðum til að minnast Ingibjargar og Aðalsteins á Vaðbrekku. Blómsveigur lagður á leiði

Ný nefnd tilkynnt.

 

 



Við sjáumst svo vonandi sem flest. Ef það eru einhverjar spurningar varðandi ættarmótið eða einhver vill lána borð, stóla og grill og vill sleppa við að flytja það upp á Vaðbrekku vinsamlegast hafið samband við mig í síma 692-6029 og ég/við leysum málið

Kveðja

Fjóla


» 22 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 16:27:23 / Hrafnkell

Ræstitæknir lætur ljós sitt skína.

Það eru liðnir margir mánuðir síðan ég skrifaði síðast inn á síðuna. Nú er tilefni til að rjúfa þögnina. Nýtt fyrirtæki Vaðall ehf. keypti í lok júnímánaðar Skjöldólfsstaðaskóla með sundlaug og íbúð.  Þar hefur hafið rekstur gistiheimili og veitingastofa undir nafninu „Á hreindýraslóðum.“ Eigendur þessa nýja fyrirtækis eru auk mín þau Aðalsteinn í Klausturseli og Fjóla Hrafnkelsdóttir.  Vísir menn hafa þegar komist að þeirri niðurstöðu að Aðalsteinn sé kjölfestufjárfestir. Fjóla er framkvæmdastjóri, kokkur og allt þar á milli. Ég verð víst að viðurkenna að vera aðeins yfirræstitæknir.   Ég hef forframast mikið í því hlutverki, svo mjög að í gærkvöld gerði ég tilraun til að kenna þeim Diddu konu minni og Grétu Aðalsteins að búa um rúm. Þetta var allt gert af þeirri hvöt að láta gott af sér leiða.. Þess vegna voru viðbrögð þeirra vægast sagt sérkennileg. Sigríður mín sagði og var nokkuð hvöss „Við kunnum að búa um rúm, við höfum gert það áður“ Gréta þagði en ég sá skrítinn glampa í augum hennar og einhverjar viprur sem gætu hafa verið tilraun til að hlæja að mér. Ég þagnaði og sit uppi með þessa nýju þekkingu án þess að nokkur vilji deila henni með mér.

 

 



50 sumur í Hrafnkelsdal er komin út, gullfalleg bók. Þau sem eiga heiðurinn að bókinni eru  Danni, Ragnar, Kristján og Ragnhildur Aðalsteinsdóttir. Auk allra annara sem eiga þar efni.  Bókin er tileinkuð minningu afa og ömmu og vonandi treysta afkomendur þeirra sér til að eignast bókina án þess að telja að sé verið að „troða“ á þeim. Margumrætt ættarmót verður haldið á Vaðbrekku um næstu helgi. Ættarmótin hafa verið haldin sérstaklega til að halda á lofti minningu afa og ömmu. Ég er þess fullviss að þau hefðu glaðst yfir því að vita fjölskylduna samankomna  á Vaðbrekku.  Ég hef komið eitthvað að undirbúningi þeirra ættarmóta sem haldin hafa verið fram að þessu. Nú hef ég tekið ákvörðun um að hafa ekki svo mikið sem skoðun á þessum samkomum framvegis. Ég vona að mér takist að standa við það þannig að hægt verði að setja niður þessar samkomur hvar í heiminum sem mönnum sýnist án þess að ég sé að spilla því.


» 27 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 13:04:37 / fjola

Ættarmót - skráning

Kæru ættingjar

Það styttist í ættarmótið og nú aðeins 11 dagar þangað til að við hittumst. Það hafa aðeins 50 manns skráð sig og 15 látið vita að þeir mæti ekki. Það þýðir að þó nokkuð margir eða meira en helmingur hefur ekki haft samband. Mig langar til að biðja ykkur um að láta mig vita sem allra fyrst hvort þið komið eða ekki. Vinsamlegast látið það berast ykkar á milli að ég óski eftir upplýsingum varðandi þetta þar sem ég veit að ekki allir fengu póstinn sem ég sendi og alls ekki allir lesa síðurnar.

 

 



Upplýsingar sendist til fjolamagga@hotmail.com

 

 



Vonast til að sjá ykkur sem allra flest.

 

 



Bestu ættarmótskveðjur :)

 

 



Fjóla Hrafnkelsdóttir


» 20 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 10:01:57 / fjola

Ættarmót - skráning

Komið þið sæl kæru ættingjar

Mig langar til að biðja ykkur um að hafa samband við mig í fjolamagga@hotmail.com og láta vita hvort von er á ykkur á ættarmót eða ekki. Ég sendi á póstlista fjölskyldunar póst um þetta en ég hef orðið vör við að ekki allir hafa fengið þann póst.

 

Ég þarf sem sagt að vita hvort og hvenær þið komið.

Til áminningar þá er ættarmótið á Vaðbrekku 21. - 23. júlí næstkomandi.

 

Bestu kveðjur

Fjóla Hrafnkelsdóttir


» 23 hafa sagt sína skoðun

02.07.2006 20:39:27 / sigurlina

Týnd bréf vegna niðjatals

Sæl verið þið. Ragnar Ingi hefur áhyggjur. Það er að vísu ekki nýtt, en tilefnið er nýtt. Það virðist sem tölvupóstur til hans hafi týnst í póstinum hjá KHÍ og þar með ýmsar leiðréttingar fyrir niðjatalið. Nú biður hann þá sem sendu slíkan póst að hafa samband sem allra fyrst svo að leiðréttingarnar komist örugglega inn í bókina áður en hún fer í prentun, en það mun gerast snemma í þessari viku. Síminn hans er 8958697.

Bestu kveðjur,

Sigurlína

» 21 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 22:36:44 / vadbrekka

Niðjatal Vaðbrekkumanna

Ragnar Ingi er búin að koma saman Niðjatali fyrir Vaðbrekkuættina. Hægt er að sækja það á PFD formi hér ( http://www.tubbinn.is/Documents/Nidjatal/Nidjatal.pdf  ). Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta í þessu skjali endilega fari yfir þetta og komi ábendingum til Ragnars Inga Aðalsteinssonar

GSM: 895-8697

Tölvupóstur: ria@ismennt.is


» 19 hafa sagt sína skoðun

07.06.2006 00:34:01 / fjola

Ættarmót

Nú styttist í ættarmót. Ég vona að allir séu að gera sig tilbúna fyrir skemmtilega helgi.

Smá praktískar upplýsingar sem ég vildi koma á framfæri.

Salerni hafa verið leigð og verða sett upp á þeim stað sem tjaldað verður.

Alli í Klausturseli ætlar að athuga fyrir okkur hvort bletturinn fyrir neðan bæinn hentar sem tjaldsvæði. Hann taldi þó líklegt að grundinn fyrir utan fjárhúsin yrði hentugara. Þar er alveg slétt undir og ætti því að vera ágætis svefnstaður.

Grillin verða tilbúin og kolin auðvitað líka.

Hlaðan verður í toppstandi. :)

Leigður hefur verið hoppukastali. Hann er þó lítill en hentar vel fyrir yngri börnin.

Rætt hefur verið við Grétu Aðalsteins um að vera til leiðsagnar fyrir þá sem skipuleggja ratleik.

Ég hef farið og skoðað allt upp á Vaðbrekku og hafa heilmiklar framkvæmdir verið þar undanfarna mánuði. Í íbúðarhúsinu verða tilbúin 8 herbergi. Best væri ef þið gætuð verið í sambandi við mig fjolamagga@hotmail.com ef þið sækist eftir því að fá herbergi þar. Það er þó ætlast til þess að fullfrískt fólk verði í tjöldum. Ef fólk óskar eftir öðru þá eru nokkrir staðir sem koma til greina. Það er ljóst að Grund og Brú hafa verið leigð út á sumrin ef fólk hefur verið í sambandi við eigendur. Þá er rekið gistihús/hótel á Aðalbóli. Hrafndís kemur með upplýsingar varðandi þessa hluti hér á vefnum fljótlega.

Verð á mann eru 1.000 kr.

Hlakka til að sjá ykkur

Kv

Fjóla Hrafnkelsdóttir


» 3 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 00:00:25 / Víddi

Víðir í bæjarstjórn

Kæru vinir, nú nálgast sveitastjórnarkosningar og það er á brattan að sækja. Þess vegna leita ég nú til allra ættingja og vina og bið um allann þann stuðning sem þeir geta veitt. Oddur er öruggur inni en ég er í 3. sæti sem er baráttusæti og það er því fyrst og fremst ég sem þarf á þessum stuðningi að halda. Mér þætti mjög vænt um ef þið sýnduð mér það traust að veita mér atkvæði ykkar því þau skipta mig miklu máli. Ekki þætti mér verra að þið hnipptuð kannski í vini og vandamenn og lýstuð mannkostum mínum fyrir þeim sem ekki þekkja mig. Nú er baráttan kominn á það stig að nú er það maður á mann sem gildir. 47% íbúa Akureyrar eru óákveðnir svo það er eftir miklu að slægjast. nú set ég allt mitt traust á ykkur vinir góðir. Mitt markmið er í raun aðeins eitt. Það er að láta gott af mér leiða, öllum íbúum bæjarins til hagsbóta. Ykkar atkvæði gætu gert gæfumuninn.

Íhaldsins daunilla dugga,
dregur á eftir sér skugga.
En munið þá landsins lýðir
að ljósið í myrkrinu er Víðir

Með bestu kveðju Víðir Benediktsson X-L

» 29 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 21:09:59 / Tjorvi

Hestafár!

Tekið af tubbinn.is

23 apríl, 2006

Hestamennska

Nýjasta æðið hjá fjölskyldunni er hestamennska. Við leigum pláss fyrir tvo hest og erum með í láni tvær merar, þær Slettu og Flugu. Þær eru nú ekki þær frambærilegustu og eru dyntóttar og brögðóttar ef sá gállin er á þeim. En núna viljum við gjarnan eignast okkar eigin hest, við erum byrjendur í þessum heimi og hestakaupin þurfa taka mið af því. Nú vil ég bara varpa því til þeirra sem þetta lesa hvort þeir geti bent mér á brúkleg hross sem hægt er að kaupa fyrir sanngjarna upphæð. Þið megið gjarnan setja í skoðanirnar hér fyrir neðan ef þið eruð með ábendingu sem gæti nýst okkur. Það má líka senda mér póst á tjorvi@hugur.is eða hringja í 820-3076.



» 31 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 22:26:25 / sigurlina

Myndir í Vaðbrekkubók

Ágætu Vaðbrekkingar.
Sum ykkar vita kannski að það er verið að taka saman bók um Aðalstein og Ingibjörgu á Vaðbrekku, ásamt ýmsu skemmtilegu um búskaparár þeirra þar og uppvöxt systkinanna. Í bókinni verður birt niðjatal Aðalsteins og Ingibjargar og þegar farið var að ræða um birtingarform þess, kom fram mikill áhugi allra sem hafa tjáð sig um málið á því að hafa myndir með. Það hefur því verið ákveðið að fólk geti sent inn myndir sem birtast með texta um það. Hér með eruð þið því hvött til að drífa í að senda myndir af ykkur og fjölskyldum ykkar til Ragnhildar Aðalsteinsdóttur á Akureyri, sem ætlar að sjá um að búa myndirnar til birtingar.
Bestu kveðjur.

Sigurlína

» 24 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10